Ögmundur stígur á lýðræðisbremsuna

EES-samningurinn er ólýðræðislegur og þarf að endurskoða. Ögmundur Jónasson stígur á bremsur í þágu lýðræðis þegar hann neitar að innleiða tilskipun sem hönnuð er fyrir meginland Evrópu en hentar ekki á Íslandi.

Norðmenn undirbúa uppsögn EES-samningsins og við eigum að vera því viðbúin að taka upp tvíhliða viðræður við Evrópusambandið um tollamál og fríverslun.

Steingrímur J. og Jóhanna eru á stórflótta og segja Íslandi aðeins í könnunarviðræðum við Evrópusambandið, sbr. :,,Samkvæmt ákvörðun meirihluta Alþingis er nú verið að kanna til fullnustu kosti og galla aðildar."

Þegar búið er að husla umsóknina eru næstu mál EES-samningurinn og Schengen með sínum frjálsa innflutningi glæpamanna.

 

 


mbl.is Hafnar EES-tilskipun um póstinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breivík og bjálfinn: kostir ónýta Íslands

Búsáhaldarbyltingarfólkið, Margrét Tryggva et. al., fór hamförum útaf ónýtum sílikontúttum, iðnaðarsalti og menguðum áburði og sagði það allt saman sanna að Ísland væri ónýtt land. Misheppnuð viðbrögð lögreglunnar við bjálfanum sem bjó til hvell með ómerkilegri sprengju eru talin vitnisburður um hversu ónýtt allt er á Íslandi.

Kostir ónýtisins eru þeir að íslenskir sprengjumenn kunna ekki til verka - enda af ónýtri þjóð. Viðbragðsáætlanir eru í samræmi við það. Fum og fálm hæfir hálfvitahætti.

Hver vill skipta á íslenska spregjuföndraranum og hinum norska Breivik?


mbl.is Leitað að karlmanni vegna sprengju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pólitísk og efnahagsleg sársaukamörk

Ytri áföll, svo sem hækkun olíu, verða skrifuð á reikning ríkisstjórnar Jóhönnu Sig. vegna þess að vinstristjórnin er löngu komin fram úr öllum pólitísku sársaukamörkum sem hægt er að draga.

Vinstristjórnin skilur eftir sig slóða axarskafta ef ekki spellvirki á þjóðarhagsmunum: Icesave, ESB-umsóknin, atlagan að stjórnarskránni, eineltið gagnvart Geir H. Haarde, bankasódóman hin nýrri og svo má áfram telja.

Ríkisstjórn sem málar sjálfa sig út í horn verður skotspónn, líka skeyta sem hún hefur ekki unnið fyrir. Þegar kjósendur fá loksins loksins tækifæri að kjósa af sér Jóhönnu, Össur, Steingrím et. al. verða rökin margvísleg en niðurstaðan alltaf ein og söm: fyrsta vinstristjórn lýðveldissögunnar er algerlega misheppnuð.


mbl.is Komið að sársaukamörkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 2. febrúar 2012

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband