Sunnudagur, 19. febrúar 2012
Egill Helga, Baugur og Bingi
Egill Helgason tekur undir það sjónarmið að eigendur fjölmiðla stýri þeim. Sjálfur hefur Egill starfað hjá Baugsmiðlum og er núna hjá Birni Inga Hrafnssyni og útrásarauðmönnum sem halda Eyjunni/Pressunni á floti.
En, auðvitað, er hugsanlegt að kvótaeigendur stýri Mogga og Davíð Oddssyni en hvorki Jón Ásgeir né Bingi þeim miðlum sem Egill Helga starfar hjá.
Jamm.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 19. febrúar 2012
90% stjórnmálanna snúast um 10% heimilanna
Stjórnmál á Íslandi snúast um þau heimili sem eru í skuldakreppu, - en það er eitt af hverjum tíu heimilum. Aðeins helmingur af þessum tíu prósentum, þ.e. fimm prósent heimila landsins, eru í vanskilum vegna hrunsins - hin voru í vanda í bullandi góðæri.
Hvað veldur því að stjórnmálaflokkar og stjórnmálamenn veita þessum fámenna hópi svona mikla athygli?
Hér er tilgáta: Íslenskir stjórnmálamenn hafa ekki neina framtíðarsýn og eiga þess vegna ekkert erindi við 90 prósent þjóðarinnar sem ekki er í skuldavanda. Stjórnmálastéttin er hugmyndasnauð og huglaus - þorir ekki að segja við skuldugt fólk að það verði að græja sig sjálft. Það er miklu einfaldara og hættulausara að tala um ,,vanda" afmarkaðra og skilgreindra hópa en framtíð þjóðarinnar.
Niðurlæging stjórnmálastéttarinnar heldur áfram.
|
Forsetinn fundar aftur um skuldir heimilanna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |

