Schengen er frjálst flæði glæpamanna

Fyrir misskilning tóku íslensk stjórnvöld þátt í að gera íslensk landamæri að ytri landamærum Evrópu. Af því leiðir að innlent og evrópskt glæpahyski á greiða leið inn og út úr landinu.

Schengen samkomulagið um ytri landamæravörslu Evrópuríkja er sniðið og hannað fyrir ríki með sameiginleg landamæri. Ísland er eyja.

Íslensk stjórnvöld, þ.e. eftir að við höfum losnað við Samfylkinguna úr ríkisstjórn, þurfa að endurskoða Schengen.


mbl.is Reglum breytt vegna Guðbjarna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin segir sig úr íslensku samfélagi

Samfylkingin einn flokka hunsar Búnaðarþing og gefur landsbyggðinni langt nef. Samfylkingin er ein á helfararleið til Brussel og hlustar aðeins á meðreiðarsveina. Ef einhver er vogar sér að hafa í frammi aðrar skoðanir en Samfylkingunni er að skapi er umsvifalaust skellt á viðkomandi.

Frekjupólitík Samfylkingarinnar kúgaði þingmenn Vinstri grænna til að samþykkja ályktun um ESB-umsókn. Eins og háttur er yfirgangsfólks gengur forysta Samfylkingarinnar á lagið. Á laugardaginn er fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla og viðbúið að niðurstaða hennar verði Samfylkingunni mótdræg. Forysta Samfylkingarinnar leitar allra ráða til að fresta þjóðaratkvæðagreiðslunni.

Því lengur sem Samfylkingin situr í ríkisstjórn því meiri verður skaðinn.


mbl.is Samfylkingin hunsaði fund Evrópunefndar Búnaðarþings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur einangraður í ESB-helförinni

Össur Skarphéðinsson er ekki með þjóðina að baki sér í ESB-helför Samfylkingarinnar. Vinir Össurar í breska Verkamannaflokknum þvo hendur sínar af Össuri, en ásamt Björgvini G. Sigurðssyni er utanríkisráðherra félagi Browns. Þingmenn Vinstri grænna flýja Össur unnvörpum.

Þýskalandsför Össurar verður vonbrigði. Þýskir munu endurróma boðskap Díönu Wallis, sem var hér nýverið á vegum Evrópuþingsins, að heimavinna Samfylkingarinnar sé hörmung. Evrópusambandið hefur ekki áhuga á meðsekt kvislingastjórnar örríkis sem  svælir þjóð undir Brusselvaldið í skjóli efnahagshruns. Ólíkt Össuri bera ráðamenn í Evrópu lágmarksvirðingu fyrir þjóðarvilja.

Fíflagangur Össurar og Samfylkingar með ESB-helförinni kostar þjóðina dýrt, bæði mælt í krónum og orðspori.


mbl.is Utanríkisráðherra bjartsýnn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenskt hálmstrá Grikkja

Ástæðan fyrir erlendri athygli á væntanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-frumvarpið er að útlendir menn gera því skóna að svokölluð uppreisn skattgreiðenda á Íslandi gegn kröfu um að almenningar axli byrðar fjármagnseigenda verði fyrirmynd að andófi gegn kröfum um aðhald annars staðar i heiminum. Grikkland er nefnt í þessu samhengi.

Íslendingar ætla að segja nei við kröfu Breta og Hollendinga að almenningur á Íslandi axli ábyrgð á gjaldþroti einkabanka sem starfaði samkvæmt evrópskum reglugerðum. Við segjum nei vegna þess að okkur er stætt á því. Engin lög skylda okkur til að borga. Ísland innleiddi þær evrópsku reglugerðir sem krafist var af okkur. Innistæðusjóðurinn er til, þótt hann ráði ekki við þær kröfur sem upp á hann standa, en það er engin ríkisábyrgð á sjóðnum. Punktur.

Grikkir hafa notið velsældar undanfarin ár og horfast í augu við allt önnur vandamál en blasa við hér á Íslandi.  Opinberar skuldir eru að sliga Grikki sem í ofanálag standa höllum fæti í samkeppni við önnur hagkerfi á evrusvæði. Grikkjum er meinuð aðferð við að ná tilbaka samkeppnishæfi með því að fella gjaldmiðilinn. Skráð gengi evru tekur lítið mið af 10 milljónum Grikkja, en miðast því meira við 150 milljónir Frakka og Þjóðverja.

Enskur prófessor segir Grikki á leið inn í afríkusyndróm þar sem stjórnvöld og almenningur neita að horfast í augu við veruleika ofneyslu undanfarinna ára.

Íslendingar almennt, en ekki íslensk stjórnvöld, horfast í augu við veruleikann og hafna yfirgangi Breta og Hollendinga. Við segjum nei á laugardag og fáum nýja ríkisstjórn sem er meira í takt við þjóð sína en sitjandi stjórn.


Bloggfærslur 3. mars 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband