Benedikt, Björt; raðbilun hjá Viðreisn-Bjartri framtíð

Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra og formaður Viðreisnar á að segja af sér, eftir að hann lýsti sig óviljugan að standa með lögeyri landsins, krónunni.

Björt Ólafsdóttir ráðherra og samflokksmaður Benedikts í bandalaginu Viðreisn-Björt framtíð kennir feðraveldinu um stórfelldan dómgreindarskort af sinni hálfu þegar hún auglýsti fatnað í sölum alþingis.

Pólitísk raðbilun í bandalagi Viðreisnar-Bjartar framtíðar sýnir svart á hvítu að þessi stjórnmálasamtök eru ekki í neinum tengslum við hversdagslegan veruleika. Burt með Benedikt og burt með Björtu.


mbl.is Sýndi dómgreindarleysi með myndatöku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinstrimenn og stjórnlagaþing: Ísland - Venesúela

Líkt og vinstristjórnin í Venesúela efndi vinstristjórn Jóhönnu Sig. 2009-2013 til stjórnlagaþings. Rökin eru þau sömu: ,,til að koma á friði í kjöl­far átaka, mót­mæla og póli­tískr­ar patt­stöðu."

Hæstiréttur Íslands ógilti kosningarnar til stjórnlagaþings vegna annmarka við framkvæmd þeirra. Þá ákvað ríkisstjórn vinstrimanna í Reykjavík að búa til stjórnlagaráð, sem fékk það verkefni að stúta stjórnarskránni.

Með umorðun frá borgarskáldinu: hjörtum vinstrimanna svipar saman í Caracas og Reykjavík 101.


mbl.is Lýsa yfir áhyggjum af dalandi lýðræði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

80 ár frá hreinsunum Stalíns

1937 hófust í Sovétríkjunum ofsóknir sem kenndar eru við ,,hreinsanir". Samkvæmt tilskipun átti að uppræta ,,gagnbyltingarsinna" og þá sem voru ,,andsovéskir." Í raun voru aðgerðirnar til að treysta völd Stalíns leiðtoga Sovétríkjanna og réttlættar með hugmyndafræði kommúnisma.

Um 1,5 milljónir manna voru handteknir og af þeim um 700 þúsund teknir af lífi.

Stalín var löngum lýst sem óhefluðum valdasjúkum manni með ofsóknaræði. Í seinni tíð er sú mynd dregin upp af honum að hann hafi verið barn síns tíma, nokkuð snjall en hversdagslegur að mestu. Það sem gerði hann að einum mesta fjöldamorðingja sögunnar er hugmyndafræðin.

Kommúnisminn er í einn stað söguleg nauðhyggja. Vísindalegur sósíalismi skyldi taka við af borgaralegu arðráni þar sem verkalýðnum var skammtaður skítur úr hnefa. Í annan stað krafðist byltingin ofbeldis, því meira ofbeldi því betra.

Altæk hugmyndafræði, hvort heldur veraldleg, eins og sósíalismi, eða trúarleg, líkt og kristni miðalda og múslímatrú allar götur frá 7. öld, er iðulega hrátt ofbeldi þegar búið er að skafa af helgislepjuna.

,,Hreinsanir" altækrar hugmyndafræði beinast einatt að þeim sem hugsa sjálfstætt. Gefur auga leið.


Valdelti fjölmiðla - Trump eignast vini

Fjölmiðlar eru hver með sitt sjónarhorn, eins og Björn Bjarnason bendir á. Sjónarhornið markast af eignarhaldi, sögu og menningu fjölmiðils. En fjölmiðlar vilja einnig fylgja meginstraumum í samfélaginu sem þeir starfa í og verða þá á tíðum gagnrýmislausir, líkt og Sigmundur Davíð rekur.

Valdelti fjölmiðla er ekki eingöngu hjarðhegðun þar sem haldið er í humátt á eftir forystusauðnum. Fjölmiðlar þrífast á athygli. Fjölmiðill sem enginn nennir að fylgjast með deyr drottni sínum. Í síkviku almenningsáliti reyna fjölmiðlar að veðja á réttan hest. Valdelti er birtingarmynd þess, eins og mátti sjá þegar RÚV var eins og hundur í bandi Pírata á meðan sá flokkur naut lýðhylli.

Donald Trump Bandaríkjaforseti naut ekki stuðnings fjölmiðla, nema örfárra (Fox, Breitbart). Hann varð forseti þvert á spár og þótti, þykir enn af mörgum, senuþjófur. 

En Trump er orðinn forseti og embættinu fylgir vald. Fjölmiðlar eru sumir hverjir farnir að veðja á Trump, tileinka sér sjónarhorn valdsins. Guardian, sem ekki er í vinahópi Trump, segir, með nokkurri fýlu, að fjölmiðillinn Circa sé orðinn að uppáhaldi í Hvíta húsinu.

Circa nýtur vinsælda meðal ungra fjölmiðlaneytenda. Miðillinn stökk á Rússafréttina en fylgir línu Trump við val á sjónarhorni. Sem sagt valdelti.


Sænska hópsálin er kynlaus, siðlaus og náttúrulaus

Einstaklingurinn fæðist í líkama sem er annað tveggja kvenkyns eða karlkyns. Enginn velur sér líkama, börn einfaldlega fæðast kvenkyns eða karlkyns. Þessa fæðingargjöf tekur einstaklingurinn með sér út í heiminn í það ferðalag sem efni og aðstæður leyfa.

Menntastefna sem kennir kynleysi útilokar einn af grunneiginleikum einstaklingsins. En það er einmitt í gegnum þennan grunneiginleika sem einstaklingar tileinka sér siði og háttu í samfélaginu. Maður getur skipt um trú, stjórnmálaskoðun, maka og ríkisfang. En maður skiptir ekki um kyn - nema í læknisfræðilegum undantekningum.

Kynlaus einstaklingur er án grunnverkfæris náttúrunnar til að skilja heiminn. Slíkur einstaklingur gæti mögulega orðið tannhjól í kynlausri, siðlausri og geldri hópsál. En aðeins í samfélagi sem væri algjörlega einangrað frá náttúrunni og siðmenningunni frá því sögur hófust.


mbl.is Kynhlutlausir leikskólar í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Demókratar elta Trump

Donald Trump var kjörinn forseti út á atkvæði millistéttarfólks sem óttast um atvinnu sína annars vegar og hins vegar íhaldsmanna sem stendur ógn af frjálslyndri alþjóðahyggju (innflytjendum, fjölmenningu, réttindum minnihlutahópa).

Demókratar lærðu sína lexíu, segir í grein í New Republic. Demókratar færa sig nær stefnu Trump í efnahagsmálum og sópa undir teppið innflytjendum, samkynhneigðum, málefnum þeldökkra og frjálsum fóstureyðingum.

New Republic er málgagn þeirra sem vilja allt til vinna að Trump verði aðeins forseti í fjögur ár. Þótt það feli í sér að taka upp helstu stefnumál hans.

 


Alræði og andóf, hetjubolir og jólasveinahúfur

Alræðisstjórnir þola ekki andóf enda grefur það undan alræðinu. Andófið er bælt en leitar sér farvegs í táknum, eins hetjubolum í Tyrklandi.

Hernámi Þjóðverja í Noregi á dögum seinna stríðs var andæft með því að klæðast rauðum jólasveinahúfum, jafnvel á sumardögum og gerðu það bæði fullorðnir og börn.

Þýska herstjórnin og leppar þeirra bönnuðu jólasveinahúfur. Ef börn undir 14 ára voru gripin með rauða húfu hlutu foreldrarnir refsingu.

Hugmyndaauðgi andófsins er alltaf skrefi á undan alræðinu.


mbl.is Handteknir fyrir hetjuboli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auschwitz, sekt og sannar goðsagnir

Þýskir nasistar myrtu gyðinga skipulega í milljónavís í seinni heimsstyrjöld. Þetta er almenn þekking og margstaðfest af sagnfræðingum. Nýleg bók um fjöldamorðin og skipulag þeirra er KL: A history of the nazi concentration camps eftir Nikolaus Wachsmann.

Út frá þessari almennu þekkingu verða sögur, sumar sannar í merkingunni að þær eru sagðar í samræmi við þekktar og viðurkenndar heimildir og vitnisburði eftirlifenda, en aðrar skáldskapur. Dæmi um skáldskap er sagan af þýska stráknum sem óvart fór í gasklefa vegna þess að hann hafði fataskipti við gyðingastrák. Sagan kom út á bók og var kvikmynduð en hún er ekki sagnfræði heldur skáldsaga sett í sögulegt umhverfi.

Bera Þjóðverjar samtímans ábyrgð á fjöldamorðum gyðinga í seinni heimsstyrjöld? Svarið fæst hvorki frá sagnfræði né skáldskap. En það er ekki goðsaga að mörgum Þjóðverjum finnst þeir bera ábyrgð. Og þegar sagt er á bók, eins og Finis Germania, að sektarkenndin sé Þjóðverja lifandi að drepa eru viðbrögðin hörð. Það er heldur ekki goðsaga.

 


mbl.is Segir Auschwitz vera goðsögn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Múslímasport að drepa fólk

Handahófsdráp á fólki við hversdagslega iðju er kennimerki múslíma hin seinni ár. Þýska lögreglan segir árásarmanninn í Hamborg múslímskan flóttamann sem til stóð að flytja úr landi. Jafnframt að maðurinn hafi tengsl við ,,íslamista", sem er annað orð yfir múslíma.

Trúarkenning múslíma mælir fyrir að heimsbyggðinni er skipt í tvo hópa, trúaða og vantrúaða. Rétturinn til lífs og velsældar er bundinn við annan hópinn, þá trúuðu. Þeir vantrúuðu eiga í besta falli að vera undirsettir þeim trúuðu. Ef þeir vantrúuðu eru með múður er múslímum rétt og skyld að drepa þá.

Sérfræðingar í trúarmenningu múslíma, t.d. Hamed Abdel-Samad, segja moskur múslíma undirlagðar af þessu mannfjandsamlega viðhorfi, að skipta fólki í trúaða og vantrúaða.

Múslímskur einstaklingur sem telur á sig hallað á vesturlöndum og ákveður si svona að drepa mann og annan á almannafæri á auðvelt með að finna trúarlega réttlætingu fyrir hryðjuverkinu.

Þar liggur vandinn.


mbl.is Köstuðu stólum í árásarmanninn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góða fólkið hræðist kjósendur

Góða fólkið í Svíþjóð er með böggum hildar. Svíþjóðardemókratarnir mælist stærstur flokka en góða fólkið tók sig saman um að útiloka þjóðernisflokkinn frá völdum og áhrifum.

Norski rithöfundurinn Karl Ove Knausgård þekkir sænskt þjóðfélag giska vel. Hann skrifaði ádrepu til Svía og sagði þá aðeins þola eina skoðun í helstu samfélagsmálum.

Þegar ráðandi skoðun í Svíþjóð er að útiloka stjórnmálaflokk sem meira en fjórðungur kjósenda styður er komið í óefni fyrir góða fólkið.


mbl.is Vilja flestir forðast þingkosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband