Höskuldur er pólitískt ólæs

Síðasta mæling á fylgi flokka sýnir Framsókn undir forystu Sigmundar Davíðs ná vopnum sínum. Flokkurinn er kominn í tveggja stafa tölu en var kominn niður í sex prósent þegar Sigmundar Davíðs naut ekki við.

Höskuldur Þórhallsson lýsti sjálfur frammistöðu sinni sem ,,ferlegri" þegar hann stal senunni stjórnarkreppunni í vor. Núna kemur sá ferlegi aftur blaðskellandi og telur sig eiga erindi á stóra svið stjórnmálanna.

Höskuldur er veginn á vogarskálum stjórnmálanna og metinn léttvægur. Hann ætti ekki að gera sjálfum sér þann grikk að bæta pólitísku ólæsi á ferilskrána.

 


mbl.is Býður sig fram gegn Sigmundi Davíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölmiðlaveldi Jóns Ásgeirs splundrast

Undir merkjum 365 miðla bjó Jón Ásgeir Jóhannesson til fjölmiðlaveldi sem gaf tóninn í dægurmálum fyrir hrun - og bar blak af útrásarkúltúr Jóns Ásgeirs og félaga. Eftir hrun er ekki sama flugið á 365 miðlum.

Viðskiptamódelið áskriftarsjónvarp, fjarskiptafyrirtæki og blaðaútgáfa gekk ekki upp. Sumpart vegna tæknibreytinga, tilkoma Netflix, en einnig vegna skorts á tiltrú á fjölmiðlum Jóns Ásgeirs sem takmörkuðu vaxtarmöguleika.

Nú er ákveðið að búta í sundur fjarskipti og ljósvakamiðla annars vegar og hins vegar blaðaútgáfu og netmiðlun.

Vodafone kaupir fjarskipta- og sjónvarpshlutann en blaðaútgáfan og netmiðlunin bíður annars kaupanda.

Jón Ásgeir stofnaði til fjölmiðlaveldis vegna viðskiptahagsmuna sem felast í dagskrárvaldi opinberrar umræðu. Hann mun ekki nenna að eiga fríblað og visir.is sem eru jaðarútgáfur og bíður eftir tilboði.


mbl.is Kaupa ljós- og fjarskiptahluta 365
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Birgitta bjargar heilbrigðismálum...í Húsasmiðjunni

Birgitta Jónsdóttir leiðtogi Pírata sagði í viðtali við RÚV, sem Veggurinn birtir, hvernig bjarga ætti heilbrigðismálum þjóðarinnar.

Birgitta hitti mann í Húsasmiðjunni, en hann sagði henni frá einhverri ,,skýrslu sem Boston Global gerði um hvernig heilbrigðiskerfið er hérna".

Birgitta fer um víðan völl í viðtalinu og kemst að lokum að þessari niðurstöðu: ,,held ég að það sé mjög brýnt að fá samantekt núna."

Stjórnlist Pírata er að fá samantekt um skýrslu.

Næst biður Birgitta um úrdrátt úr samantektinni um skýrsluna. Þ.e. ef hún hittir mann í BYKO sem segir henni frá manninum í Húsasmiðjunni sem sagði henni frá einhverri skýrslu... 

 


Píratar og vinstrimenn svelta skóla

Andmenntastefna Pírata og vinstriflokkanna í Reykjavík veldur kennaraflótta úr höfuðborginni. Núna taka foreldrar höndum saman og krefjast úrbóta eftir áralangt svelti leik- og grunnskóla í Reykjavík.

Til skamms tíma létu vinstriflokkarnir sér annt um skólastarf. En innreið lífsstílsstjórnmála síðustu ára breytti áherslum vinstrimanna. Innviðir samfélagsins, svo sem gatnakerfi og skólar, mættu afgangi. Ofuráhersla er lögð á fyrirbæri eins og grenndarlýðræði með 5 prósent kosningaþátttöku og opinber salerni fyrir þriðja kynið, sem telur núll komma eitthvað prósent.

Ef Píratar og vinstriflokkarnir fá meðbyr í þingkosningum í haust verður reykvíska sérviskupólitíkin að landsplágu. Flugvöllum verður fargað og menntakerfið gert að hornkerlingu en við fáum nýja stjórnarskrá og að greiða atkvæði um inngöngu í brennandi hús Evrópusambandsins.


mbl.is Börnin dvelji ekki í „sársveltum“ rekstri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aukið framboð vímuefna eykur neyslu

Starfshópur um vímuefnamál leggur til að framboð eiturlyfja skuli aukið með því að refsa ekki fyrir vörslu neysluskammta. Þetta felur í sér fjölgun dreifingaraðila, sem hver um sig dreifir neysluskammti og tekur litla áhættu - lendir ekki einu sinni á sakaskrá.

Það er ósamræmi í málflutningi starfshópsins, sem segir að vímuefnavarnir séu góðar annars vegar en hins vegar leggur fram tillögur er draga úr gildandi vörnum.

Það er hvorki í þágu almannahags að auka framboð fíkniefna né að brjóta niður varnir gegn þessum vágesti.


mbl.is Hætti að fangelsa fyrir neysluskammta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Píratar sýndu á spilin - og tapa

Píratar eru flokkur aukinna ríkisútgjalda og sem slíkir ný útgáfa af vinstriflokki. Prófkjör Pírata voru bæði fámenn og stórundarleg í framkvæmd.

Á síðustu vikum sýndu Píratar á spilin og uppskera tap í fylgismælingum. Fylgið fellur um 4,4 prósentustig á milli mánaða.

Eftir því sem nær dregur kosningum verður sundurgerðarpólitík Pírata almenningi augljósari. Leiðin liggur niður á við. Spurningin er hvenær botninum verður náð.


mbl.is Fylgi Pírata dregst saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Píratar og vinstriflokkar eyðileggja skólastarf

Kennarar í skólum Reykjavíkur flýja ástandið sem Píratar og vinstriflokkarnir búa skólastarfi. Innviðir skólanna í Reykjavík eru feysknir eftir margra ára vanrækslu. Ýmis lífsstílsverkefni, s.s. að þrengja götur og setja upp kynlaus salerni, njóta forgangs Pírata og vinstriflokkanna.

Ef Píratar og vinstriflokkarnir fá framgang í næstu þingkosningum verður allt á sömu bókina lært í landsstjórninni og Reykjavíkurborg. Fjármálaleg óreiða og ónýtir innviðir.

Við hljótum að afþakka forræði Pírata og vinstriflokkanna yfir landsstjórninni þegar reynslan sýnir að lífsstílsstjórnmál leiða til öngþveitis.

 


mbl.is Tálgað af lögboðnu hlutverki skóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB-sinni: Evrópa er að hrynja - Viðreisn býðst hola eða skolpræsi

Joschka Fischer fyrrum utanríkisráðherra segir Evrópusambandið að hruni komið. Ef ekki verður brugðist strax við liðast Evrópusambandið í sundur. Fischer er eindreginn ESB-sinni og talar fyrir sambandsríki sem má kenna við Stór-Evrópu.

Fischer segir að mistök ESB liggi í því að hafa ekki nýtt sér fall Sovétríkjanna í kringum 1990 til að knýja fram samrunaþróun. Hann nefnir ekki, enda óþægilegt mál, að evran sem var bein afleiðing af sameiningu Þýskalands, eftir fall Sovétríkjanna, er ekki beinlínis auglýsing um kosti samrunaþróunar. Fischer óttast að í stað þes að sameinast mun Evrópa grafa sér holu til að stinga höfðinu ofan í og vonast til að allt fari á besta veg.

Þjóðverjar eru óðum að átta sig á því að utanríkisstefnan sem ESB/Nató og Bandaríkin fylgdu eftir fall Sovétríkjanna er algerlega misheppnuð. Núverandi utanríkisráðherra Þýskalands, Frank Walter Steinmeier, birtir ákall um nýja stefnu í utanríkis- og öryggismálum þar sem Rússar yrðu hafðir með í ráðum.

Úkraínudeilan, sem Bandaríkin efndu til við Rússa, og notuðu ESB/Nató sem verkfæri, mistókst hrapalega. Vesturlönd sitja uppi með ónýtt ríki á kafi í spillingu þar sem rússneskumælandi uppreisnarmenn stjórna þeim landsvæðum sem liggja að Rússlandi. Úkraína veður hvorki aðili að ESB né Nató næstu áratugina. Rússar segja njet og við það situr.

Í beinu framhaldi af tilraunum vesturveldanna að auka áhrif sín í Austur-Evrópu ákváðu Rússar að stórauka aðstoð við Assad Sýrlandsforseta sem vesturveldin vildu knésetja. Die Welt segir Rússa, Írani og Tyrki stjórna atburðarásinni í Sýrlandi, vesturveldin eru áhorfendur. Tyrkland, sem er Nató-ríki, samþykkir að Assad forseti sitji áfram við völd. Vesturveldin segja Assad fjöldmorðingja, svona eins og Hussein í Írak 2003, en þau þora ekki að senda bardagahermenn þangað, enda Íraksklúðrið í fersku minni.

Evrópusambandið getur ekki tekið forystu á alþjóðavettvangi og lætur Bandaríkin um það. En Bandaríkin eru jafn miklir einfeldningar í alþjóðapólitík í dag og þeir voru á dögum Víetnamstríðsins. Íraksstríðið 2003 til 2011 er skýr vitnisburður. Þeir skildu eftir sig ruslahrúgu af ríki sem Ríki íslams gerði að tilraun með kalífadæmi.

Eftir Brexit er Evrópusambandið í uppnámi. Sigmar Gabriel, varakanslari Þýskalands og leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins, segir ESB á ,,leið í skolpræsið" ef samningar um úrsögn Breta fara illa.

Hvort sem Evrópusambandið lendir í skolpræsinu eða skríður upp úr holunni, sem Fischer lýsir, er morgunljóst að sambandið verður í tilvistarkreppu næstu 5 til 15 árin hið minnsta. Þjóðir utan Evrópusambandsins, t.d. Norðmenn, prísa sig sælar að standa utan ESB. En á Íslandi er stofnaður flokkur, Viðreisn, sem vill inngöngu í Evrópusambandið. Opin spurning er hvort heillar Viðreisn meira holan eða skolpið.


mbl.is Brexit hefur ekki haft áhrif á Norðmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Wintrismálið er pólitísk aftaka án dóms og laga

RÚV og verktaki þess í Wintris-málinu, Reykjavík Media, neituðu Sigmundi Davíð um þau gögn sem ásakanir á hendur honum og eiginkonu hans voru reistar. Þetta kemur fram í pistli aðstoðarmanns Sigmundar Davíðs, Jóhannesar Þórs.

Í réttarríki tíðkast að sá sem er ásakaður um eitthvað fái upplýsingar um sakarefni. Án þess er algjörlega ómögulegt að verja sig. RÚV/Reykjavík Media neituðu að leggja fram upplýsingarnar og hafa enn ekki gert.

RÚV/Reykjavík Media segja að ,,lykilspurningum" sé ósvarað. En gögnin, sem ekki hafa enn verið lögð fram, eru sjálfar forsendur meintra ,,lykilspurninga."

RÚV/Reykjavík Media ætlast til að Sigmundur Davíð sanni að hann sé saklaus. En það er að snúa viðurkenndum leikreglum samfélagsins á haus. Enginn er sekur í okkar samfélagi nema sýnt sé fram á sekt hans, fyrir dómstólum eða í opinberri umræðu.

Ef leikreglur RÚV/Reykjavík Media eru teknar góðar og gildar er leyfilegt að fara fram á opinberum vettvangi með lygar og áburð en engum rökum eða málsatvikum og krefjast þess að sakborningur sanni sakleysi sitt.

Leikreglur RÚV eru uppskrift að siðlausu samfélagi þar sem ásakanir jafngilda sönnun sektar, ef aðeins nógu margir taka undir í fjölmiðlum, bloggi og samfélagsmiðlum.

 


Samfylkingin á röngum enda sögunnar

Kristrún Heimisdóttir er stofnfélagi Samfylkingar. Ásamt sitjandi borgarstjóra heimsótti hún, um síðustu aldamót, stofnfundi samfylkingarfélaga víða um land og kynnti sjónarmið ungs fólks. Fimmtán árum seinna og gott betur segir Kristrún:  Samfylkingin er ekki gott samfélag og þess vegna getur flokkurinn ekki lagt samfélaginu gott til.

Samfylkingin er vont samfélag vegna þess að flokkurinn er á röngum enda sögunnar. Samfylkingin varð frjálshyggjuflokkur rétt áður sú stefna rann sitt skeið í alþjóðlega hruninu 2008. Þá varð Samfylking eindreginn talsmaður alþjóðahyggju, sbr. Evrópustefnuna, í þann mund sem alþjóðavæðingin steytti á skeri.

Íslenskur kratismi er krónískt á röngunni. Alþýðuflokkurinn var flokksheimili þeirra sem lögðust gegn stofnun lýðveldis 1944. Krötum fannst hyggilegra að vera áfram dönsk hjálenda en að standa á eigin fótum.

Slæmir einstaklingar eru ekki ástæða vonds samfélags heldur ónýtar hugmyndir. Kratar eru sérstaklega ginnkeyptir fyrir ónýtum hugmyndum. 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband